Samantekt um þingmál

Uppbygging og rekstur fráveitna

404. mál á 145. löggjafarþingi.
Umhverfis- og auðlindaráðherra.

Markmið

Að skýra og treysta grundvöll  álagningar fráveitugjalds á vegum fráveitna sveitarfélaga.

Helstu breytingar og nýjungar

Að heimilt verði að innheimta fráveitugjald af öllum fasteignum þar sem tenging er fyrir hendi við mörk fasteignar. Fráveitugjald verður hlutfall af fasteignamati en þó aldrei hærra en 0,5% af heildarfasteignamati og stjórn fráveitu verður skylt að yfirtaka eina tengingu við fráveitu frá safnakerfi að lóðamörkum sveitarfélags.

Breytingar á lögum og tengd mál

Breyta á lögum um uppbyggingu og rekstur fráveitna nr. 9/2009.

Kostnaður og tekjur

Hefur ekki áhrif á ríkissjóð.

Afgreiðsla

Samþykkt óbreytt.

Aðrar upplýsingar

Dómur Hæstaréttar nr. 613/2013 sem varð kveikjan að þessari lagabreytingu.


Síðast breytt 17.03.2016. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Unnið af starfsfólki upplýsinga- og rannsóknaþjónustu Alþingis.

Um samantektir

Samantektir um þingmál hafa verið birtar á vef Alþingis síðan á 141. þingi (2012-2013). Markmiðið er að setja fram í stuttu máli greinargóðar upplýsingar um þingmál og að tengja í efni sem gæti skýrt það frekar.

Samantektir eru einkum unnar um stjórnarfrumvörp en upplýsingum um önnur mál er bætt við eftir þörfum. Fylgst er með máli frá því að það kemur fram á þinginu og upplýsingum bætt við eftir því sem fram vindur. Þær eru að mestu fengnar úr texta frumvarps og umsagna, en tengt er í efni á öðrum vefjum eftir því sem tilefni er til. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Umfjöllunin á að vera óhlutdræg en ekki er hægt að gera ráð fyrir að hún sé tæmandi. Samantektin er ekki hluti af þinglegri meðferð né formlegum skjölum þingmálsins.

Allar ábendingar og athugasemdir eru vel þegnar og má senda þær á netfangið rannsoknathjonusta@althingi.is.